Færslur: 2007 Nóvember
19.11.2007 17:46
Lokabloggið.....
Ég hef ákveðið að loka blogginu mínu, það er komið að því að endurnýja það og eftir góðann umhugsunartíma
ákvað ég að hætta þessu bara. Enda yfirleitt ekkert merkilegt sem hingað ratar inn.

14.11.2007 15:46
Afmælisbarn dagsins.......er.......
Þessi færsla er í tilefni afmælisbarnsins....
og hér er mjög góð mynd af henni af því tilefni.
Til hamingju með afmæli Sigfríð!!!!!

annars sit ég á námskeiði, er að stelast.
kv.Ásta

04.11.2007 17:01
Rokk og Rósir, rugl og bull.
Þessi vika er búin að vera fljót að líða, mikið um að vera og allt að gerast bara. Ég var fyrir sunnan á mánudaginn á námskeiði að vanda í snjó og frosti, montaði mig gífurlega af því að það væri allt autt, nánast grænt og frekar hlýtt bara á Egilsstöðum þá dagana, en mér hefndist fyrir það og um kvöldið var farið að snjóa, kominn frekar mikill snjór á þriðjudag og gífurlegt frost á miðvikudag. Svo á föstudaginn var orðið hlýtt og þarafleiðandi ægilega hált.
Elísa Eir kom heim og tilkynnti að hún hefði mælst með 291 atkvæði í lestri og var hæst í báðum bekkjunum og það var hreinlega yndislegt að lesa námsmatið hennar sem við fengum heim einnig þann dag. Tillitsöm, kurteis og mjög námsfús og A nær allsstaðar, svo um kvöldið var pizza að venju og svo gúmmelaði í eftirmat að hennar ósk.
Á laugardaginn vorum við bara í kósýheitum og kertaljós og kókoskaffi hér fram eftir degi, Elísa fékk sér Búlluborgara og við rest af pizzunni frá föstudeginum og svo leigðum við Gremlins á Vodinu, Elísu leist ekkert á myndvalið hjá okkur og lýsti yfir miklum efasemdum um gæði þessarar myndar, hún hefði sko viljað sjá Step Up eða einhverja álíka gelgjumynd í svona 100 asta skiptið. En hún var ægilega spennt og hló og hló yfir myndinni, og ég viðurkenni að ég var búin að gleyma hvað hun var skemmtileg svo við lágum öll 3 í hláturskasti yfir henni í gærkvöldi, og svo í framhaldinu var horft á catwoman, dálítið seint á Elísu mælikvarða en hún lét sig hafa það og svaf líka til 10 í morgun sem er afar sjaldgæft hjá þessum morgunhana sem yfirleitt er komin fram í síðasta lagi um 9.

Dagurinn í dag er búinn að vera æðislegur, átum jógúrt og snarl í hádeginu, og vöfflur núna í kaffinu og dagurinn endar með Fajitas og Dýravinum, sem eru ómissandi þættir á Sunnudögum, svo ég tali nú ekki um Næturvaktina, ég er reyndar búin að missa af 3 síðustu þáttum en það getur varla gert mikið til. Ég er að fara suður annað kvöld, kem á fimmtudagskvöldið og vikuna þar á eftir verð ég alla vikuna. sjitt hvað ég er ekki að nenna því en það er líka búið svo eftir það. Reyndar er ég búin að vera hreinlega með rugluna, hellti kaffi í ruslafötuna og kaffikorgnum í vaskinn hehe en það er bara til að hlægja að , við erum líka búin að hlægja nokkuð að atviki sem kom fyrir í Ártröðinni, ég var að koma úr sturtu og ætlaði að setja á mig rollon þegar kúlan virðist hafa festst í tappanum og í stað þess að bera á mig létt af svitalyktareyði þá hellti ég á mig úr flöskunni, Kiddi trylltist alveg úr hlátri og við hlægjum reglulega af þessari sögu. Minnir mig dálítið á söguna af Önnu og tannkreminu hahahaha. ég hlæ oft af henni. Við erum klárlega magnaðar...
Stefnan er sett á litlu jól, ss jólaföndur, hreindýr og súkkulaðikaka í eftirmat síðustu helgina í nóvember fyrir starsfólk Símans plús maka og erum að spá í að vera bara hér, hlusta á jólatónlist og föndra og elda svo öll saman um kvöldið. Betra gerist það varla. Annars er ég að klára jólagjafirnar, á held ég 3 gjafir eftir fyrir utan Elísu og Kidda og við erum búin að ákveða Elísu og kidda á ég bara eftir að kaupa, löngu ákveðið hvað hann fær heheh. Verð að viðurkenna að ég er komin í ægilegt jólaskap og hlakka mjög mikið til jólanna í ár. En jæja, ætla að fara að hætta þessu og henda mér í sófann og horfa á einhverja geggjaða mynd. Sjáumst seinna, kv. Ásta

- 1
Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 5
Gestir í gær: 3
Samtals flettingar: 41782
Samtals gestir: 19885
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 20:08:40